Amma Borga
20.07.2009 21:12:05 / trausti

Ættarmótið góða.

Takk fyrir góðan hitting þið öll.
Svo er bara að plana næsta.
Kv. Dröfn Traustadóttir


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.06.2009 09:04:25 / trausti

Ættarmót í Fannahlíð

Sælir ættingjar

Nú er að bresta á ættarmót helgina 10-12 júlí.  Eins og undanfarin ár verður það staðsett í Fannahlíð við rætur Akrafjalls.
Þetta verður sama fyrirkomulag eins og undanfarin ár hver og ein fjölskylda kemur með læri á grillið eins og þeir myndu borða. Nefndin skaffar salat með en þið komið með drykkjarföng og annað meðlæti ef þið viljið eitthvað sérstakt með.

Það er fín tjaldstæði fyrir stóra sem smáa og allir hvattir til að mæta með tjöld og skapa smá stemmingu. Eins þeir sem eiga hljóðfæri og væru til í að spila undir í fjöldasöng beðnir um að koma koma með þau með sér.

Ef það eru einhverjir krakkar sem hafa áhuga á að æfa skemmtiatriði fyrir laugardagskvöldið þá eru þau hjartanlega velkomin að stíga á svið og syngja, dansa, segja skrítlur eða vera með leik.
Eins væri gaman ef þau tækju með sér eitthvað útidót sem allir gætu sameinast í leik með úti á túni, eins og fótbolta, krikket, frisbí eða eitthvað álíka.

Kostnaður er 1500kr pr. fullorðin og miðast aldurinn við þá sem eru að verða eða eru orðnir 16 ára.

Kveðja ættarmótsnefndin.


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.01.2009 23:15:25 / gunna

Hann á afmæli

Sælir kæru ættingjar
Hann á afmæli í dag hann Rúnar Andri sonur minn, drengurinn er orðinn 8 ára.
Við hlökkum öll til að sjá ykkur á ættarmótinu í sumar
Kv. Halldóra Björk (Gunna, Gullý, Bára, ÉG)


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.12.2008 03:08:54 / trausti

GLEÐILEG JÓLIN

kÆRU ÆTTINGJAR.

Fjölskyldan frá faraldsfæti óskar gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Nú er spurning um að haska sér í bloggið  og muna ættarmót.
Það er nú ekki svo mikil kreppa á lyklaborðinu og margir bara nokkuð duglegir og geta séð af nokkrum slögum á mínútu..


ÞAÐ ER SETT Í GANG KAPP BLOGG...

ÞEIR SEM ERU DUGLEGASTIR AÐ BLOGGA FRAM AÐ ÆTTARMÓTI FÁ AÐ LAUNUM KNÚS OG KOSSA FRÁ ÆTTINNI, SÍRÍUS SÚKKULAÐI OG AÐDÁUN ÆTTARINNAR (ALLAVEGA ÞEIRRA SEM KUNNA Á TÖLVU)

Jólakveðjur Dröfn Traustadóttir


""""og koma svo"""""


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.11.2008 18:37:58 / gunna

Afmæli


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.11.2008 14:26:33 / gunna

Ættarmót og fleira:)

Sælt veri fólkið, hvað segi þið þá??

Já kannski vert að minnast á það, Kristín Lilja hérna:) næst síðasti ætliðurinn. Veit nú ekki hvort ég eigi að skrifa almennilega hverra manna ég er, hef held ég gert það áður hérna á síðunni...en allavega þá er það Gunna - Gógó - Sólrún - ég:)

Ég er hérna stödd í Danmörku, nánar tiltekið Kaupmannahöfn. Er í skiptinámi frá HR, í DTU, og hef það bara ágætt þrátt fyrir kreppuna miklu. Gengið orðið sky high og ekki hægt að kaupa sér bjór niðrí bæ fyrir minna en 1000 kr. íslenskar, eitthvað sem við íslendingar erum ekki alveg vanir. En þetta er nú ekkert hræðilegt, ekki eins og mín kynslóð hafi eitthvern tíman upplifað skort áður, kannski kominn tími til. Við getum þá kannski sýnt hvað í okkur býr og komið Íslandi aftur upp á yfirborðið:)

En nóg um, langaði að forvitnast aðeins um ættarmótið sem verður næsta sumar...ég held að ég sé nefnd fyrir það, en hef ekki heyrt neitt..?? Veit einhver eitthvað um það??

Svo er ég með eina spurningu í viðbót, hvað heitir húsið sem ættarmótið verður í?

Annars er á stefnuskránni að kíkja í heimsókn til hennar Drafnar, hún býr hérna bara rétt hjá mér. Hún hafði sambandi við mig á bloggsíðunni minni og bauð mér að kíja í heimsókn:) Mjög fyndið þegar ég minnist á það við vini mína hérna...að ég sé að fara að heimsækja frænku mína sem sé skyld mér í hvað...5 ættlið, eða 4..(ekki alveg með það á hreinu)...þau bara...þekkiru ættina þína svona langt aftur í tímann??? Æðislegt að geta svarað því játandi:) Hvað er mikilvægar en fjölskyldan og vinirnir:)

En hafi þið það gott hvar sem þið eruð í heiminum:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.09.2008 11:18:42 / trausti

Afmælisbarn dagsins

Mamma mín, hún Sigrún Traustadóttir, á afmæli í dag.  Hálfrar aldar gömul 8|
Hún er ekki heima í dag, en þiggur stóra harða pakka á milli 16 og 17 á morgun :lol::lol:

Ella Gumma


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.08.2008 15:16:03 / trausti

Afmælisbarn dagsins er Sævar Sigurðsson (þuruson)

Þegar ég var skírð þá spurði Sigrún systir mín litlu frændur sína hróðug "munið þið hvað lillan heitir?"

Sævar svaraði æ hún heytir Doppa eða eittkvað svoleiðis.
Sævar og Grétar og Stína eru þau einu sem eru með leifi á þetta nafn.

Til hamingju með daginn elsku kúturinn.

Doppa frænka og co
(Dröfn Trausta)


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.08.2008 08:41:38 / trausti

Afmælisbarn dagsins

Er ég...



Kveðja Ella Gumma (Trausti-Sigrún-ég)


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.08.2008 09:10:44 / trausti

Afmælisbarn dagsins

Afi Trausti er 78 ára í dag.  Hann vill fá stóra harða pakka senda til sín uppí sumarbústað... nei djók en það er alltaf heitt á könnuni  hjá þeim gömlu ef einhver kemur til að smella kossi á hann.

Til hamingju með daginn afi minn.

Ella og co

P.s gaman væri ef fleiri settu inn svona afmælistilkynningar.


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.07.2008 14:19:42 / gunna

Á Góðri Stund í Grundarfirði

Sælt veri fólkið nær og fjær:)

Ég var svo ótrúlega sniðug í gær þegar ég var að skoða þetta nýja og frábæra blogg okkar að ég ákvað að stofna mér nýja blogg síðu. (á nefnilega ein úrelta:)) En ég var nú ekki sniðugri en það en að gleyma að leggja á minnið notendanafnið OG lykilorðið sem ég valdi mér...og þar með kemst ég ekki inná mína eigin síðu:( (Að svo stöddu allavega, kemur í ljós hvort ég næ að grafa þetta upp einhvers staðar úr heilanum:))

En vil bara minna alla á að nú um helgina fara fram hátíðardagar í Grundarfirði með þvílíkum herlegheitum að það hálfa væri nóg:) Allir velkominir í Grundarfjörðinn:)


http://agodristund.grundarfjordur.is/

Allar helstu upplýsingar má finna á þessari síðu...og ef þið sjáið ykkur fært að mæta þá vinsamlegast mætið í ÖLLU RAUÐU...þar sem við fjölskyldan(Solla mamma mín og Unnur systir hennar búum í RAUÐA hverfinu:))

Takk fyrir mig....og góða helgi öll sömul....

Kristín Lilja (gunna>Gógó>Solla>ÉG)

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.07.2008 07:43:39 / trausti

Ættarmótið á næsta ári.

Það er ekki seinna vænna að láta vita að mamma (Ella hans Trausta) er búin að panta húsið fyrir næsta ár.  Það er ekkert annað en það að allar helgar eru uppteknar í þessu húsi nema helgin 10-12 júlí 2009.  Þannig að þá er að ákveða þetta eða finna nýtt hús.  Held samt að við höldum okkur við þessa helgi, hvað finnst ykkur?
Kveðja, Didda Lóa

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.07.2008 20:50:14 / trausti

Hvaðahvaða feimni í gangi?

Sé að það er fullt af fólki búið að kíkja í dag en enginn þorað að skrifa neitt.   Ég skal vera fyrst svo hvet ég hina sem eru kannski ekki vanir bloggarar að prufa setja inn færslu, það er alltaf hægt að henda þeim út aftur.

Kveðja Ella


» 1 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 6588
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 932 dögum
Ættarmót